Auglýsing

Guðaveigar

15. febrúar 2008 klukkan 22:21

Fimm bestu tjúttin í lífi Arhus:

 

1. Reykjavik Tropic 2006: Ég og Helgi Jónasson skelltum okkur á tónlistarhátíðina Reykjavik Tropic í júní og þvílík ferð! Af þremur frábærum kvöldum stóð þó laugardagskvöldið upp úr. Við höfðum fengið frípassa á hátíðina í gegnum páver beygluna hana Telmu Magnúsdóttur gegn því að við ynnum á barnum í stóra tjaldinu á laugardagskvöldinu. Snemma um kvöldið tókum ég og Helgi okkur stöðu fyrir aftan aðalbarinn og upp frá því hófst mikil skemmtun svo vægt sé til orða tekið. Tókum við hlutverk okkar hæfilega alvarlega og pössuðum okkur á að veita vinum og vandamönnnum áfengi gegn vægu (engu) gjaldi, auk þess sem við gerðum gæðasmökkun á guðaveigunum á ca hálfrar mínútu fresti – þær stóðust alltaf prófið. Eftir að hafa farið á kostum á barnum og hlustað á gæða músík á borð við Supergrass í leiðinni var ferðinni vitaskuld heitið niður í bæ. Kvöldið endaði á mjög svo ánægjulegum nótum.


2. Salou 2003: “El vino did flooow!” (David Brent)

Þessi umdeildi bjór smakkaðist svo sannarlega vel í útskriftarferðinni...


3. MA-reunion 2005: Maaaagnað kvöld. Hófst að mig minnir með kyngimögnuðu fyrirpartýi í Vanabyggðinni og svo var marserað í Höllina. Þetta kvöld var, ólíkt útskriftarkvöldinu árinu áður, laust við öll formlegheit og því var dólgurinn í hávegum hafður. Ég man að ég skrallaði svo bilað að það var eiginlega syndsamlegt!

Egill Daði og Helgi Jónasson í 1. bekk í MA...þvílík mynd...


4. Lokahóf hamranna 2006: Eins og alltaf þegar Hamrarnir halda skipulögð hóf þá er gríðarlegt stuð á mönnum. Lokahófið 2006 var okkar fyrsta opinbera lokahóf ef svo má að orði komast og þvílíkt og annað eins djöfullegt fyllerí. Menn úðuðu vökvanum í boddíin sín eins og óðir menn og það endaði svona líka illa fyrir sumum. Ég man fátt frá þessu kvöldi, en bætti þó við tveimur páver skemmtistaðasleikum og uppsölu á rekordið...glæsilegt frammistaða þó ég segi sjálfur frá. Daginn eftir varð ég þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn “þynnka dagsins” í útvarpsþætti einum á Voice.

Eric Daniel Djemba Djeeeemmba!


5. Árshátíð fjallsins 2007: Klárlega eitt besta djamm sem ég hef attendað. Byrjaði með bröns í Eggertsötunni og svo var haldið í óvissuferð um kl 11 um morgunin og ég man eftir að hafa útdeilt fyrstu servesunum til liðsins stuttu seinna. Seinni partinn fórum við í eina stórbrotnustu vísindaferð sem haldin hefur verið, í vinnuvélasölu eina á Selfossi, þar sem við (mökkölvuð) fengum m.a. að keyra dráttarvélar eins og ekkert væri eðlilegra. Kvöldið var svo gjörsamlega epískt í alla staði - punktur.

Árni Steinar Stefánsson
Flottur Helgi nýkominn úr Stjörnusól með eyrun hans Nasa!
15. febrúar 2008 klukkan 22:32
helgi
 
Ég er afar stoltur af því að hafað fengið að vera með AArhusnum í 4 af 5 djömmum á þessum lista... ég er ekki viss um að ég gæti skrifað pistla um þau því ég er afar gjarn á það að muna ekki hvað gerist á djömmmmmum, ég man t.d. ekki eftir supergras, örugglega skemmtilegir! en ég hef alltaf vitað að ég er með langt og ljótt nef en þegar ég sé þessa mynd þá verð ég að bæta eyrunum við þann lista! hvað er í gangi!!!!!! ég er samt helvíti handsome þarna, ungur og óharnaður!
16. febrúar 2008 klukkan 09:48
helgi
 
spurning um að bæta vísindaferð í landsvirkjun á listann?
16. febrúar 2008 klukkan 09:49
Pose
 
Spurning, hvenær verður myndbandið góða af því þegar að arhus tók Iglesias á svölunum á Salou sett á þessa síðu?
16. febrúar 2008 klukkan 22:32
Jónas
 
Haha já það er hárrétt hjá þér Pose. Þetta var alveg epískt móment sem maður gleymir aldrei!
17. febrúar 2008 klukkan 14:00
Árni St
 
Pose og Jónas: Hahaha já gúúúd tæææms!.......og þvílík kommúnustemmingin sem réð ríkjum á Village Park á Salou-tímanum!

Helgi: Haha...Landsvirkjunar-vísindaferðin er klárlega á topp10-listanum...amk hvað ölvunarstig varðar....
17. febrúar 2008 klukkan 17:59
Sindri Ká
 
Ef ég man rétt þá er "dú jú nó the Enríke Iglesías, faðer off the Húlíó Íglesías" mynband til einhverstaðar. Er það ekki Youtube-kandídat Jónas?
18. febrúar 2008 klukkan 10:12
Sindri Ká
 
Annars má búast við lýsingum í dag á aðkomu minni að Arhus núna aðfaranótt síðastliðins sunnudags en ég var gestkomandi hjá þeim Agil og Árna um helgina. Vægast sagt epísk upplifun...
18. febrúar 2008 klukkan 10:15
hahaha. en einnig vill ég Árni St, minnast þess er þú komst í sumar í turninn, og ég og þú og magnús eyddum saman nóttu fram til 8 um morguninn. það var feikilega gott djamm, ef það var ekki á þessum lista fyrir, ég hreinlega veit það ekki.

en gaman að þessu
18. febrúar 2008 klukkan 11:15
Telma
 
Var Helgi 8 ára þegar hann byrjaði í Menntaskólanum?
18. febrúar 2008 klukkan 14:37

Skrifa athugasemd