Önderestimeit
Það er margt vanmetið í blessuðu lífinu. Arhus hefur týnt til nokkur atriði sem eru stórlega vanmetin.
1.Segemyhr. Þetta hringir etv ekki bjöllunni hjá öllum en fyrir þá sem eru ekki svo heppnir að vita hvað ég er að tala um þá er Segemyhr sænskir sjónvarpsþættir sem rötuðu á sjónvarpsskjá landsmanna fyrir nokkrum árum. Á að giska eru ca. 6-7 ár síðan þættirnir voru sýndir á Stöð 2 en á sínum tíma fengu stöðvar2-menn þá aumu hugmynd að taka þá af dagskrá. Þættirnir skörtuðu kostulegum karakterum og þó þættirnir hafi verið sænskir var húmorinn merkilega beinskeyttur.
Glæsilegt
2. Lélegt ríalití tíví. Hér er vissulega erfitt að alhæfa en þættir á borð við íslenska batselorinn, Ástarfleygið og High school reunion hafa skapað talsverðan unað hjá Arhus í gegnum árin.
3. Pylsur eru klárlega vanmetnasti maturinn. Alltof oft verð ég var við fyrirlitningu fólks í garð þessa gúrme matar og það er ekki gott. Pylsur eða pullur eins og ég vil kalla þær eru herramannsmatur og klikka einfaldlega aldrei. Þykja mér Bónus-pullurnar bestar.
4. Húmor er stórkostlega vanmetið fyrirbæri. Fólk sem hefur ekki húmor er leiðinlegt. Húmor er vissulega flókinn og ekki allir sammála um hvað sé góður húmor osfrv, en að hafa húmor fyrir flestum hlutum og þar á meðal sjálfum sér er gríðarlega góður kostur. Sjálfur hef ég grásvartan, grunnhygginn, barnalegan og kaldhæðinn húmor.
5. Bandarískar hetjuíþróttamyndir. Cool runnings, Remember the Titans, Miracle, Friday Night Lights, Coach Carter og fl eru stórlega vanmetnar.
Schnilld
6. Jon Obi Mikel. Þessi léttgeðveiki Nígeríumaður er í miklum mætum hjá mér en hefur þurft að þola talsverða fyrirlitningu frá mörgum mönnum. Það verður hins vegar ekki frá honum tekið að hann hefur mikla hæfileika.
7. Magnús Blöndal. Blösterinn ættu allir landsmenn að þekkja enda einn merkasta mannvera sem Íslendingar eiga. Einhverra hluta vegna er Magnús þó umdeildur en fyrir mér er þessi drengur kostulegur og glæsilegur í alla staði. Reður hans er auk þess stórt í sniðum.
Helmassaður Blöster með Breeezzer í báðum!!
8. Sigtið. Ég vanmat þessa epísku sjónvarpsþætti til að byrja með en svo sá ég ljósið og aftur varð ekki snúið! Frímann Gunnarsson er mjellinn!
9. Kurteisi er töluvert vanmetin.
10. Sleikar. Vááááááááá hvað þeir eru vanmetnir!!! Sleikar eru ekki bara kúl þegar maður er 13 ára – þeir eru og verða alltaf bilað svalir og unaðslegir. Páver skemmtistaðasleikur er eitt stórbrotnasta móment sem manneskjan getur lent í.
11. Ég sem handboltamaður. Ég skoraði einu sinni 7 mörk í einum leik og hef auk þess skorað fram hjá Bjarna Frostasyni. Auk þess á ég Stabil Adidas handboltaskó sem gerir mig sjálfkrafa að góðum handboltamanni, ekki satt??
12. Faxe-bjór er Langsamlega besti “vondi/ódýri” bjórinn!