Auglýsing

Bööörnát!

24. júní 2008 klukkan 14:44

Þorgeir Rúnar Finnsson er maður sem allir ættu að kannast við enda er hann vel yfir meðallagi frægur. Fyrir þá bjána sem þykjast ekki vita hver kauði er þá er ég að tala um ljúflinginn sem sér um fréttirnar á N4 þessa dagana. Drengurinn er vægast sagt að fara á kostum og vinnur bara á. Maður hefur heyrt af því að ófáar húsmæðurnar séu farnar að stilla símana á reminder í hvert skipti sem Togginn á að skjánum - slíkt er aðdráttaraflið! Einn góðan veðurdag í maí tókum við kumpánar (Ég, Egill, Jónas og Arnór) upp á því að analæsa frammistöðu þorgeirs á skjánum. Hafa ber í huga að þá var hann nýbyrjaður og því mátum víð út frá fyrstu fréttatímunum. Ég drullaði þessari færslu aldrei inn vegna bloggar.is-bilanna og einhverra aumingja-ástæðna...en nú hefur birt til og hér kemur þessi langþráða færsla!

 

Frammistöðumat á Þorgeiri, aka Brabbanum, aka Dressman, aka skelfirinn, aka Byggðavegs-brabbinn, aka Benz-brabbinn fyrir fréttatíma 6. og 7. maí.



Árni

Jónas

Egill

Arnór

Lúkk

9,5. Þorgeir er þekktur fyrir urrandi kynþokka og yfirgnæfandi líkur á að nokkrar dömurnar hafi f**** sér vel og innilega eftir að hafa séð drengnum bregða fyrir á skjánum.

9,0. Það verður seint tekið af Þorgeiri -  hann fer langt á lúkkinu. Engin undantekning þar á í þetta skiptið.

10,0. F-in fimm hafa lengi fylgt Brabbanum; flottur, fimur, felgaður, fallegur og feitur. Þessir kostir fleyta Brabbanum langt.

9,5. Það er einungis eitt sem bravison þarf að hafa til þess að verða þekkt andlit á hverju heimili og hann hefur svo sannarlega nóg af því. Að sjálfsögðu er um að ræða hið fagra fax sem folinn hefur.

Fas/talsmáti

7,8. Mátulega harðmæltur og er það vel. Með góðan orðaforða og vefst sjaldan tunga um tönn.

8,5. Fas og talsmáti eru ein sterkasta hlið Brabbans. Nær fullt hús stiga í þessum flokki

6,5. Þrátt fyrir vissan stífleika og of mikla áherslu á ákveðna sérhljóða kemur El Brabbs vel út í frumraun sinni.

8,0. Þrátt fyrir að þurfa að líta einstaka sinnum niður á textann þá kemur það ekki niður á honum því bravison er annálaður fyrir að vera vel að máli farinn.

Gæði frétta

0,4. Með fullri virðingu fyrir hversdagslífi Norðurlandsins þá voru að mínu mati alltof mikið af "gúrkum" í báðum fréttatímum. Ég fékk lítið út úr því að vita að hjólbarðasöfnun í Hörgárdal gengi vel að nýja gróðurhúsið í Kjarna væri ca 9 metrar á breidd (no shit).

3,0. Það er ekki hægt að neita því að þarna voru svoddan gúrkur á ferðinni. En hver lífgar þær við ef það er ekki Brabbinn?

3,5. Fréttirnar sem slíkar eru slakar, en Brabbó gefur þeim gildi.

9,0. Það veit það hvert mannsbarn að fréttir af Norðurlandi eru bestu fréttir í heimi og þafnast þessi flokkur ekki frekari útskýringar.

Niðurstaða

Meðaltal: 5,9. Ásættanleg frammistaða. Ég geri fanatískar kröfur þegar kemur að frammistöðu Brabbans og mín niðurstaða er sú að hann geti gert betur.

Meðaltal: 6,8. Mjög gott start. Verður farinn á Stöð 2 innan tveggja ára

Meðaltal: 6,7. Sterk innkoma í íslenska fjölmiðlaflóru - gott stuff.

Meðaltal: 8,8. Einhver sú sterkasta innkoma í ljósvakamiðil síðan Ómar Ragnarsson.



Árni Steinar Stefánsson
5 athugasemdir

Rússablokkering

20. apríl 2008 klukkan 22:15

Berrösssuð og sæl

Á árum áður áleit ég Frey Arnórsson óforskammaðan og óvandaðan  pilt – þar hafði ég rangt fyrir mér - þessi dómur yfir byggðist á fáfræði. En sem betur snérist þessi mynd af drengnum upp í andhverfu sína eftir að ég kynntist honum betur. Ég lít á Frey sem ákveðinn kraftaverkapilt – hann innir af hendi lítil kraftaverk á hverjum degi sem hafa hin ýmsu birtingaform, enda er Freysinn sympatísk mannvera sem sem finnur til með þeim sem minna mega sín. Þess ber þó að geta að Freyr getur ekki gengið á vatni enda talsvert þungt í honum pundið.

Með sinni alkunnu málsnilld og léttu og látlausu fasi á Freyr auðvelt með að létta almúganum lífið og jafnvel kalla fram einlægt bros af vörum útúrlifaðs óreglufólks. Dæmi: Freyr stoppar í BSÍ og hyggst kaupa sér málsverð. Í lúgunni bíður hans úrill afgreiðslukona á sextugsaldri sem er ekkert nema hortugheitin. Freyr sér sér leik á borði og byrjar á að bjóða góðan dag á smjaðurlegan en þó einlægan hátt. Konan bregst ókvæða við en finnur um leið eitthvað bresta inna með sér – Freyr hefur náð að spila á lítin streng í annars svartmyglulegu hjarta þessarar konu...og það sem meira er - náð að kalla fram lítið bros á ógeðfelldum vörum hennar. Nokkrum mínútum seinna kveðja þau hvort annað smælandi framan í heiminn (Freysi gefur henni mjög líklega númerið sitt, bara svona til vonar og vara).

Freyr hélt ekki alls fyrir löngu í reisu til Ástralíu þar sem hann uni hag sínu afskaplega vel eftir því sem ég best veit. Ég geri ráð fyrir að drengurinn hafi verið duglegur við að breiða út kærleiksboðskapinn í Ástralíu og sveipað almenning hinum mystíska Freys-anda. Ég analæsa þessa aðferðafræði Freysans sem kombanísjón af góðmennsku ásamt  glettilega góðum húmor. Í ljósi þessara eiginleika Freys þá spái honum góðu gengi í lífinu.

Freyr er þekktur fyrir "armbeygjukeppnisfylleríisfettiss" sitt


Hér að neðan birti ég ljóð, sem ekki hefur verið birt áður og aðeins örfáir hafa lesið. Ljóðið er stórbrotið á allan hátt.....en eftir hvern er það?

Mogginn er kominn - "jess"
Nei, Maradona er hættur - "bless, bless"
Hitler er dauður
Ja, hann var nú reyndar sauður
fínt að hann er dauður
Það stendur ekki meira
svo við ættum að keyra
í skólann - þar er þokkalega gaman
í bekknum erum við sautján saman


Epík eða hvað?!!



Árni Steinar Stefánsson
5 athugasemdir

Brabbinho

22. febrúar 2008 klukkan 19:10

Góðvinur minn hann Sindri Kristjánsson hyggst kvænast sinni heittelskuðu Rannveigu þann 16. ágúst næstkomandi. Þetta þykja mér miklar gleðifregnir. Þau munu ganga í það heilaga og það sem meira er, ég fæ að vera viðstaddur þennan merka atburð. Sindri hefur nú þegar gefið undirrituðum leyfi til að vera með semí dólgslæti í brúðkaupsveislunni en ég stefni á að hafa þroskast það mikið fyrir 16. ágúst að geta neitað mér um læti og hagað mér skikkanlega. En brúðkauðsvígslum fylgja steggjanir og það finnst mér vægast sagt spennandi tilhugsunarefni. Sindri getur sem betur fer verið þakklátur fyrir að eiga marga vini sem eru tilbúnir að láta til sín taka í steggjuninni og sjá til þess að sá dagur verði ógleymanlegur fyrir Sindra!


Það eru talsverðar líkur á að Rannveig komi að Sindra í þessari stöðu morguninn eftir steggjunina
 

Undanfarið hef ég séð tvær frábærar bíómyndir. Fyrsta ber að nefna úrvalsræmu Coen-bræðra – No country for old men. Þessi mynd er hreint út sagt mögnuð. Karakterinn sem Javier Bardem leikur er einn sá svakalegasti á hvíta tjaldinu á seinni árum og ekki er plottið verra. Myndin heldur manni rígföstum frá fyrstu mínútu og sleppir ekki takinu fyrr en hún er á enda.

 

Hin myndin er JUNO, en þá mynd skellti ég mér í gær ásamt yfirhandafintumeistaranum Þórgný Helgasyni. Skemmtum við okkur afar vel og nutum myndarinn til hins ýtrasta. Þessi mynd er unaðslega kaldhæðnisleg og uppfull að epískum samtölum.  Ég hvet alla, jafnt konur og karla, að gefa sér tíma og horfa á fyrrnefndar ræmur – jú vónt rígret it!

Þetta eru sko tvífarar...leikarinn/leikstjórinn Björn Hlynur og danski handbolta- landsliðsmaðurinn Jesper Noddesbo

Útsendingar á Jay Leno eru hafnar aftur á Skjá einum - það eru góð tíðindi...en um leið eru það hörmuleg tíðindi að sama stöð hefur á ný hafið sýningar á Rachel "getekkisteinnaglhaldiðkjafti" Ray...úffff

Árni Steinar Stefánsson
4 athugasemdir

Guðaveigar

15. febrúar 2008 klukkan 22:21

Fimm bestu tjúttin í lífi Arhus:

 

1. Reykjavik Tropic 2006: Ég og Helgi Jónasson skelltum okkur á tónlistarhátíðina Reykjavik Tropic í júní og þvílík ferð! Af þremur frábærum kvöldum stóð þó laugardagskvöldið upp úr. Við höfðum fengið frípassa á hátíðina í gegnum páver beygluna hana Telmu Magnúsdóttur gegn því að við ynnum á barnum í stóra tjaldinu á laugardagskvöldinu. Snemma um kvöldið tókum ég og Helgi okkur stöðu fyrir aftan aðalbarinn og upp frá því hófst mikil skemmtun svo vægt sé til orða tekið. Tókum við hlutverk okkar hæfilega alvarlega og pössuðum okkur á að veita vinum og vandamönnnum áfengi gegn vægu (engu) gjaldi, auk þess sem við gerðum gæðasmökkun á guðaveigunum á ca hálfrar mínútu fresti – þær stóðust alltaf prófið. Eftir að hafa farið á kostum á barnum og hlustað á gæða músík á borð við Supergrass í leiðinni var ferðinni vitaskuld heitið niður í bæ. Kvöldið endaði á mjög svo ánægjulegum nótum.


2. Salou 2003: “El vino did flooow!” (David Brent)

Þessi umdeildi bjór smakkaðist svo sannarlega vel í útskriftarferðinni...


3. MA-reunion 2005: Maaaagnað kvöld. Hófst að mig minnir með kyngimögnuðu fyrirpartýi í Vanabyggðinni og svo var marserað í Höllina. Þetta kvöld var, ólíkt útskriftarkvöldinu árinu áður, laust við öll formlegheit og því var dólgurinn í hávegum hafður. Ég man að ég skrallaði svo bilað að það var eiginlega syndsamlegt!

Egill Daði og Helgi Jónasson í 1. bekk í MA...þvílík mynd...


4. Lokahóf hamranna 2006: Eins og alltaf þegar Hamrarnir halda skipulögð hóf þá er gríðarlegt stuð á mönnum. Lokahófið 2006 var okkar fyrsta opinbera lokahóf ef svo má að orði komast og þvílíkt og annað eins djöfullegt fyllerí. Menn úðuðu vökvanum í boddíin sín eins og óðir menn og það endaði svona líka illa fyrir sumum. Ég man fátt frá þessu kvöldi, en bætti þó við tveimur páver skemmtistaðasleikum og uppsölu á rekordið...glæsilegt frammistaða þó ég segi sjálfur frá. Daginn eftir varð ég þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn “þynnka dagsins” í útvarpsþætti einum á Voice.

Eric Daniel Djemba Djeeeemmba!


5. Árshátíð fjallsins 2007: Klárlega eitt besta djamm sem ég hef attendað. Byrjaði með bröns í Eggertsötunni og svo var haldið í óvissuferð um kl 11 um morgunin og ég man eftir að hafa útdeilt fyrstu servesunum til liðsins stuttu seinna. Seinni partinn fórum við í eina stórbrotnustu vísindaferð sem haldin hefur verið, í vinnuvélasölu eina á Selfossi, þar sem við (mökkölvuð) fengum m.a. að keyra dráttarvélar eins og ekkert væri eðlilegra. Kvöldið var svo gjörsamlega epískt í alla staði - punktur.

Árni Steinar Stefánsson
10 athugasemdir

Óverestimeit

09. febrúar 2008 klukkan 15:05

Um daginn birti ég lista með nokkrum atriðum sem mér finnst vera vanmetið, en nú er komið að ofmatinu og af nógu er að taka!

 

1. Fara í fýlu. Ertu 13 ára?? Ef þú lesandi góður stundar þann ofmetna ósið að fara í fýlu við fólk viltu þá gjöra svo vel að hætta því.


2. Flottir og dýrir bílar. Ég vorkenni því fólki (alltof mörgu) sem þurfa dýrt of flott ökutæki til að tjúna upp egóið í sjálfu og telja sig vera að uppfylla lífsnauðsynlega þörf með slíkum kaupum. Þetta á vitanlega við þá sem hafa ekki efni á svona tækjum en láta það þó ekki stoppa sig.


3. Dramantík. Þvílíkt aumt og ofmetið fyrirbæri.


4. Kraftlyftingar. Ef ekki væri fyrir Fúsa Fossdal myndi ég sennilega ganga í einhver anti-kraftlyftingasamtök. Hér á ég við ólympískar lyftingar með tilheyrandi steranotkun og vitfirringu.

Hann er ekki ofmetinn hann Fúsi


5. Dósahláturs-gamanþættir. Ef valið stendur á milli þess að horfa á George Lopez eða láta Egil útlista fyrir mér allar helstu mannfræðikenningar heims þá getur Egill treyst á mína nærveru.

Viðurstyggð


6. Öfgakennd personal message á msn. Jú nóv vot æm toking abát.


7. Laukur. Klárlega eitt ofmetnasta fyrirbæri sem fyrir finnst! Það þarf að gera allsherjar anti-laukrassíu hér á landi til að sporna við þessari viðurstyggilegu laukþróun. Steiktur laukur á pullur er samt góður.

8.
Lesa kennslubækur frá A-Ö. Ég er tú kúl for skúl og er á móti því að analísera kennslubækurnar, er meiri glósumaður og hef ekki séð eftir því til þessa.


9. Star Wars. Fullkomin leið til að láta sér leiðast er að horfa á þetta rugl. Ömurlegt.

10.
Fanatískir fótboltaaðdáendur. Ég er síður en svo að segja að það sé off að styðja og fylgjast með sínu liði en gaurar sem tala um “okkur”, fara á Ölver um hverja helgi, kaupa nýjustu Predator-skóna á hverju ári og nota einu sinni í viku í bumbuboltatíma í Fífunni, klæðast nýjasta Liverpool-búningnum með Torres aftan á og eyða 2 klukkutúmum á Liverpool-spjallinu á dag...eru í ruglinu.


12. Megrunarfæði. Diet, spelt, tófú, lífrænt, rassgat...ágætt að einhverju fólki líði betur við að láta ofan í sig slíkt “hollmeti” en er þetta ofmetið? Jááááá og rúmlega það. Fanatíkin í okkur Íslendingum er orðin geigvænleg hvað hollustu varðar. Mesta hræsnin felst klárlega í því þegar fólk fær sér sveittan hambó með djembu af kokkara en svona til að “tjúna hollustuna upp” þá fær það sér coke LIGHT með – þvílík hræsni.


13. Hafa tabú fyrir því að gera grín að minnihlutahópum. Það má gera grín að svörtum, öryrkjum, fötluðum osfrv á sama hátt og gert er grín að hinum “normal” hvíta manni. 
 Það elur af sér ákveðna fordóma að gera grín að sumum en ekki öðrum.


Búinn að gleyma hvað það getur verið gaman og gefandi að vera neikvæður...

Árni Steinar Stefánsson
10 athugasemdir

Önderestimeit

05. febrúar 2008 klukkan 10:18

 Það er margt vanmetið í blessuðu lífinu. Arhus hefur týnt til nokkur atriði sem eru stórlega vanmetin.

 

1.Segemyhr. Þetta hringir etv ekki bjöllunni hjá öllum en fyrir þá sem eru ekki svo heppnir að vita hvað ég er að tala um þá er Segemyhr sænskir sjónvarpsþættir sem rötuðu á sjónvarpsskjá landsmanna fyrir nokkrum árum. Á að giska eru ca. 6-7 ár síðan þættirnir voru sýndir á Stöð 2 en á sínum tíma fengu stöðvar2-menn þá aumu hugmynd að taka þá af dagskrá. Þættirnir skörtuðu kostulegum karakterum og þó þættirnir hafi verið sænskir var húmorinn merkilega beinskeyttur.

Glæsilegt

 

2. Lélegt ríalití tíví. Hér er vissulega erfitt að alhæfa en þættir á borð við íslenska batselorinn, Ástarfleygið og High school reunion hafa skapað talsverðan unað hjá Arhus í gegnum árin.

 

3. Pylsur eru klárlega vanmetnasti maturinn. Alltof oft verð ég var við fyrirlitningu fólks í garð þessa gúrme matar og það er ekki gott. Pylsur eða pullur eins og ég vil kalla þær eru herramannsmatur og klikka einfaldlega aldrei. Þykja mér Bónus-pullurnar bestar.

 

4. Húmor er stórkostlega vanmetið fyrirbæri. Fólk sem hefur ekki húmor er leiðinlegt. Húmor er vissulega flókinn og ekki allir sammála um hvað sé góður húmor osfrv, en að hafa húmor fyrir flestum hlutum og þar á meðal sjálfum sér er gríðarlega góður kostur. Sjálfur hef ég grásvartan, grunnhygginn, barnalegan og kaldhæðinn húmor.

 

5. Bandarískar hetjuíþróttamyndir. Cool runnings, Remember the Titans, Miracle, Friday Night Lights, Coach Carter og fl eru stórlega vanmetnar.

Schnilld

6. Jon Obi Mikel. Þessi léttgeðveiki Nígeríumaður er í miklum mætum hjá mér en hefur þurft að þola talsverða fyrirlitningu frá mörgum mönnum. Það verður hins vegar ekki frá honum tekið að hann hefur mikla hæfileika.

 

7. Magnús Blöndal. Blösterinn ættu allir landsmenn að þekkja enda einn merkasta mannvera sem Íslendingar eiga. Einhverra hluta vegna er Magnús þó umdeildur en fyrir mér er þessi drengur kostulegur og  glæsilegur í alla staði. Reður hans er auk þess stórt í sniðum.


Helmassaður Blöster með Breeezzer í báðum!!


8. Sigtið. Ég vanmat þessa epísku sjónvarpsþætti til að byrja með en svo sá ég ljósið og aftur varð ekki snúið! Frímann Gunnarsson er mjellinn!

 

9. Kurteisi er töluvert vanmetin.

 

10. Sleikar. Vááááááááá hvað þeir eru vanmetnir!!! Sleikar eru ekki bara kúl þegar maður er 13 ára – þeir eru og verða alltaf bilað svalir og unaðslegir. Páver skemmtistaðasleikur er eitt stórbrotnasta móment sem manneskjan getur lent í.

 

11. Ég sem handboltamaður. Ég skoraði einu sinni 7 mörk í einum leik og hef auk þess skorað fram hjá Bjarna Frostasyni. Auk þess á ég Stabil Adidas handboltaskó sem gerir mig sjálfkrafa að góðum handboltamanni, ekki satt??

 

12. Faxe-bjór er Langsamlega besti “vondi/ódýri” bjórinn!

Árni Steinar Stefánsson
13 athugasemdir

Karakter

19. desember 2007 klukkan 19:14

Aðfaranótt þriðjudags skitu jólasveinar Eggertsgötu svo illa í nærhöld sín að fnykurinn lá yfir allri Eggertsgötunni fram undir morgun...báðir skór tómir og er það afleitt og vitaskuld mikil afglöp af hálfu beggja aðila. Sagan endurtók sig þó ekki í morgun – báðir skór troðfullir af mystískum varningi. Egill gaf mér tvö sprittkerti (ég held að ég hafi upprunalega átt þau) og svo fékk ég líka ömurlegt barmerki, merkt Vöku. Eina góða við þetta barmerki er að það minnir á Hannes Rúnar Hannesson. Ég gaf Agli lítinn chelseaknött (notaðan að sjálfsögðu) og svo Snett-gleraugnahreinsunarklúta. Eftir flopp-nóttina áður átti ég von á betra kombakki frá báðum. Þetta var heldur þunnur þrettándi.

 

Það eru til margar góðar kvikmyndir sem margar hverjar innihalda frábæra karaktera. Hér er listi með fjórum af eftirminnilegum kvikmyndakarakterum að mati Arhus.

 

Fyrstan ber að nefna Lester Burnham úr American Beauty. Hann leikur magnaðan karakter í magnaðri mynd. Ég man að ég efaðist stórlega um þessa mynd, American Beauty, á sínum tíma en eftir að ég horfði á hana í fyrsta skipti þá varð ekki aftur snúið. Lester Burnham á a.m.k. 38% í henni.


"Don't interupt me dear"...

Frank Abagnale Jr. er aðalpersóna ræmunnar “Catch me if you can”. Frank er leikinn af Leonardo Di Caprio og á hann stórleik í myndinni svo vægt sé tekið til orða. Eins og flestir vita fjallar  þessi sannsögulega mynd um einhvern frægasta svikahrapp Bandaríkjanna og stendur heldur betur undir nafni.

 


Að þetta skuli vera sannsögulegt gerir Frank ennþá svalari...

Melvin Udall.
Hvað er hægt að segja...þvílíkur karakter. Þó Jack Nicholson sé orðinn gamall og gugginn er hann fáránlega góður í þessari mynd, enda hlaut hann Óskarinn fyrir frammistöðuna. Það er leitun að öðrum eins karakter á hvíta tjaldinu...fordómafullur, óforskammaður og snaaaaargeðveikur!

Hann er dannaður kallinn...

Marv
úr Sin City er óhemjusvalur, það bara er þannig. Af mörgum íssvölum karakterum úr frábærri mynd þá stendur Marv upp úr. Ég kannast samt ekkert við kauðann sem leikur hann, en hann heitir Mickey Rourke - einhver njútralmaður þar á ferð.


Þvílíkt atriði!
Árni Steinar Stefánsson
5 athugasemdir

Melvin Udall

17. desember 2007 klukkan 21:46

Arhus lifir. Tilefnið fyrir þessari endurkomu er gott og gilt. Nú er próftíð í gangi með tilheyrandi lækkuðum lífsgæðum. Eins og flestir vita er stemmingin hér í Eggertsgötu iðulega afar fersk, alltaf einhver vakandi og standandi partý. Próftíð gerir hins vegar iðulega heiðarlega tilraun til að gera lítið úr stemmingunni...mannaþefur eykst til muna, tónlistin verður depressuð, matarmenningin tekur gríðarlega dýfu á meðan próftíð stendur yfir með tilheyrandi lípíð-söfnun. Allt hollmeti er bannað og sykurinn tekur alveg yfir (ætlaði að fá mér banana í dag en ég kúgaðist). Til að peppa upp hressleikan brydduðum við Egill upp á skemmtilegum gjörningi í fyrra en þá gáfum við hvorum öðrum í skóinn. Tókst það ákaflega vel til og margar epískar gjafir litu dagsins ljós. Það er því ekki úr vegi að endurtaka leikinn í ár.

 

Í gærmorgun vakanði ég og kíkti í skóbúnað minn sem ég hafði sett út í glugga kvöldið áður...þar hafði Klinsman sett eitt stykki tennisbolta og eina áfyllingu af cola-pez. Ég uni vel við þessa fyrstu skógjöf og vona að þetta sé bara byrjunin. Ég gaf Eggunni 2 exótískar gjafir, þ.e. tvö sleipiefni sem auka unað kynlífs til muna.


Hefði kosið aðra bragðtegund Egill ..þessi er viðbjóður


Nú í morgun hafði Klinsarinn heldur betur kyndt upp í grillinu því í skónum mínum voru pakki af Wetclean bílainnréttingaþurrkum og Lionsdale-svitaband sem ég leyfi mér að efast um að sé nýtt. Egill fékk pleasuremax durexsmokk og hálfkláraðan extratyggjó-pakka. Mínar gjafir til þessa eru nokkuð í takt við nísku mína en ég fæ þó stig fyrir praktískt gildi þeirra. Sjáum til hvort kynlífsþemað varir lengi...

It's getting hot in here...


“Ertu skarpari en skólakrakki” eru vondir þættir, það bara er þannig. Nokkur sunnudagskvöld í vetur þegar masókisminn er sem mestur hef ég horft á glefsur úr þættinum. Það er bara ein ástæða fyrir því....það er Hannes. Hann er s.s eitt barnanna sem eru fastagestir í þættinum og hann er svo glæsilegur að það er kjánalegt. Hinir krakkarnir eru fullkomlega lélegir karakterar.

 


Þvílíkt atriði!
Árni Steinar Stefánsson
4 athugasemdir

Carla Espinosa

17. september 2007 klukkan 00:20

Tjena

Síðasta vetur hafði Arhus þann háttinn á að velja reglulega glæsimenni/glæsikvenndi vikunnar. Því ætla ég að halda áfram. í þetta skipti er það ekkert skoffín* sem varð fyrir valinu. Það er einn af mínum bestu félögum, Helgi Jónasson. Helga hef ég þekkt frá því í menntaskóla og kynni okkar hafa svo aukist síðustu ár. Helgi er án efa með skemmtilegri mönnum sem ég hef kynnst, það er ekki hægt að láta sér leiðast í kringum og iðulega

Við tveir höfum farið mikinn hér í borginni síðustu tvö ár og ófáar ómetanlega minningar er uppskeran. Þessi yndislegi drengur er gæddur mörgum góðum mannkostum en þeir kostir sem standa upp úr eru óneitanlega gott skap og ómælanlegur hressleiki! Það er í raun ógjörningur að hitta Helga í vondu skapi og það er náttúrulega til fyrirmyndar. Til hamingju Helgi - þú ert glæsimenni vikunnar!

*Orðið skoffín er ei nýtt af nálinni. Það var enginn annar er dýravinurinn Bjarni Pálmason sem vakti athygli okkar félaganna á þessu orði fyrir stuttu. Skoffín er afkvæmi refs/tófu og kattar. Hér er því á ferðinni hreint út sagt kyngimagnað kvikindi. Við lítum samt á að ef þú ert talinn vera skoffín þá ertu ömurlegur, aumingi o.s.frv.


En undirritaður er byrjaður að vinna á Kleppi og líkar það afar vel til þessa. Að vinna á Kleppi er eitthvað sem ég hafði lengi ætlað mér að prófa og ég var því ekki lengi að grípa tækifærið þegar það gafst. Það er óhætt að segja að enginn dagur sé eins og þetta á án efa eftir að verða góð reynsla fyrir strákling eins og mig.

 

Enda þetta á klippu úr einum bestu þáttum sem gerðir hafa verið, þ.e. Scrubs. 


Eitt af óteljandi snilldar atriðum úr Scrubs!
Árni Steinar Stefánsson
7 athugasemdir

El vino did flooow....

10. september 2007 klukkan 23:22

Hola
"You give a little love and it all comes back to you!" eða eins og segir í nýju coke-auglýsingunni. Vissulega mikill sannleikur í þessu hjá coca-cola-mönnum.
Ansi hressandi helgi að baki. Það ríkti mikil gleði í Eggertgötunni og þá sér í lagi í herbergi Troyarans. Með áframhaldandi álfalátum er hætt við að við fáum áminningu frá nágrönnum vorum sem hugsa okkur eflaust þegjandi þörfina eftir hressleika síðustu daga. En toppurinn á helginni var án efa landsleikurinn á laugardaginn – þvílík skemmtun.

Ég og Egill erum búnir að gera vandaðan og glæsilegan gestalista fyrir veturinn. Þar útlistum við hvaða menn og konur við ætlumst til að komi í heimsókn til okkar í vetur. Listinn skiptist í partý-, matar- og næturgesti. Þeir sem þiggja ekki boð okkar þegar þar að kemur og láta aldrei sjá sig útiloka sjálfkrafa heimsóknir í framtíðinni. Ég ætla mér ekki að birta listann hér og nú heldur mun ég gera úttekt í vor og þá kemur í ljós hvernig menn stóðu sig.

Hvað er eiginlega að Grikkjum??? Maðurinn sem náði endanlega að gjöreyðileggja mannorð sitt með þátttöku sinni í “hljómsveitinni” Snooze, þ.e. brokkolí-karakterinn Brynjar Már er víst að meika það í Grikklandi. Ég veit ekki hvað þetta á að þýða en þetta mér þykir þetta bera vott um um smekkleysi mikið.
Arhus er svo með topp-lista í bígerð og mun hann verða birtur innan skamms. Enda þetta með einu kostulegu atriði úr hinum stórkostlegu Office-þáttum. Fyrsta mínútan er viðurstyggilega fyndin...

"Ohh for fucks sake".....
Árni Steinar Stefánsson
4 athugasemdir